Það er víst komin þriðjudagur þó svo að mér finnist enn vera mánudagur hehe
Líklegast sökum þess að ég fór ekki í skólann á mánudaginn heldur til hans Jóhanns Róbertssonar á landsspítalann þar sem ég fór í röntgen og læti.
Hendin virðist þó vera í góðum gróanda og hann gat ekki séð hvar brotið hafði verið og vill hann nú taka plötuna úr hendinni þar sem hún angrar mig svoldið .. Mig hlakkar mikið til að losna við þennan plötu fjanda, þá mun bólgan líklegast hjaðna og mér mun án efa líða betur en mig langar samt ekki að fara í gegnum aðgerðina sem því fylgir.. I'm such a chicken 
en já helgin gekk nú bara vel fyrir sig, á föstudeginum ljósmyndaðist ég í brúðkaupi sem gekk rosa vel var að vísu svakavæmið.
Byrjaði svaka fallega og móðir brúðgumans var presturinn og allt voðasætt og ég táraðist meira að segja, en þegar þau stóðu öll í hring og tjáðu hverju öðru ást sína og læti að þá var það aðeins too much fyrir þennan litla íslending og leið mér hálf illa enda hálf faldi ég mig í einu horninu á kirkjunni 
- En allir voru ánægðir og myndirnar heppnuðust vel svo það er fyrir öllu 
Á laugardeginum hékk ég heima hjá Siggu en fór svo út í hesthús með Seddu og hitti gobbana hennar, Jökul, Ófeig og Mánadís og það var svaka stuð.
Um kvöldið var ég svo að passa hann huginn heima hjá Sigga og Rannsý, svona svo hann Matti myndi ekki halda partý en hin fyrrnefndu voru svo mikið í útlöndum.
Matti gerði sér nú lítið fyrir og fór á Selfoss og þar sem Helgi var að vinna að þá vorum það bara við Huginn og hann Arthúr Hitler, kötturinn sem kallaður er Hilli og allt gekk bara mjög vel.
Svo þegar Sigga og Dóri komu heim um hálf ellefu voru þau í rokna stuði, sérstaklega sigga 
Allavega á sunnudeginum horfðum við Sigga á Grays Anatomy þar til Ég fór út í hesthús með henni Zeddu aftur sem var virkilega gaman, seinna fengum við okkur pizzu á pizza hut og skruppum svo á Hairspray í bíó, sem er bara snilldar mynd, mæli hiklaust með henni 
Annars er mest lítið að frétta....
Nema það jú að ég er komin inn á IMDb.com með myndum og öllu, flettið mér bara upp if you don't believe me eða klikkið á linkinn hér að neðan
http://www.imdb.com/name/nm2377973/